Knésíðri með kesjunni konur vill hann fanga.

Allsnakinn á Esjunni

aleinn þar að spranga.

Knésíðri með kesjunni

konur vill hann fanga.


mbl.is Allsnakinn á Esjunni í 600 metra hæð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðahelgin framundan

Ferðahelgin framundan

finnst mér ágæt vera.

Erfiðleika afturundan

allir burtu skera.

 


mbl.is Ein stærsta ferðahelgi landsins framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmsir vilja fara á flakk

Ýmsir vilja fara á flakk

frekar en að strita.

Veðurstofu vinsælt pakk

veldur miklum hita.


mbl.is Hitabylgja um helgina og víða 25 stiga hiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt var allt það stríð

Ömurlegt var allt það stríð,

eflast gráu hárin.

Heim komst þó úr hverri hríð.

Hundrað reyndust árin.


mbl.is „Manni leið bara eins og glæpakvendi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur vilja kynlíf fá

Konur vilja kynlíf fá

kátan Benna lokka.

Einkum munu allar þá

ætla páfa smokka.


mbl.is Engir smokkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyst á drykkju dofnaði

Lyst á drykkju dofnaði

svo damlað var til baka.

En Svíagreyið sofnaði.

Og svo var gerð ein staka.


mbl.is Reyndi að róa Eyrarsundið eftir sumbl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringhenda í tilefni dagsins

Ísbjörn skjóta urðu þar

utan kvótans rauða.

Til bangsa ljótu byssurnar

báru skjótan dauða.


mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísabjörn í æðarvarpi

Ísabjörn í æðarvarpi.

Ekki góðar fréttirnar.

Lenti Bjössi í leiðu karpi

Lappa við og kollurnar.


mbl.is Ísbjörn í æðarvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ill nú grætur örlög sín

Ill nú grætur örlög sín

og allra sinna dætra.

Áður var hún flott og fín

í fangi pilta sætra.


mbl.is Ekki grúppíubarn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piparlöggur piparúða

Piparlöggur piparúða

puðra yfir mannskapinn.

Það er mátulegt á lúða.

Og losar þá við galskapinn.


mbl.is Slagsmál brutust út eftir nágrannaerjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frækið lið í flugstöðinni

Frækið lið í flugstöðinni

færeyskt kynnti siðina.

Fólkið sinnti fótmennt sinni

og fannst það stytta biðina.


mbl.is Stigu hringdans í flugstöðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggið

Vinsælt bloggið virðist mér.

Vart er því að leyna.

Vantar kannski væna hér.

Vísu svosem eina.


Allt fram streymir endalaust...

Allt fram streymir endalaust

áfram prestar líða.

Svarthöfði þar svikalaust

sýnist göngu prýða.


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nefnilega svoleiðis

Alltaf syngur einn í kór:

Eg vil gjarnan fá þig.

En með brjóstin extra stór

ekki vil ég sjá þig.


mbl.is Hætti með Söru vegna brjóstastækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rakblöð fá ei ræningjar.

Rakblöð fá ei ræningjar.

Rýrnun jók ei þolið.

Ekki fá þeir eggvopn þar

og engu geta stolið.


mbl.is Rakvélablöðin bara við kassann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hassið var í húsbifreið...

Hassið var í húsbifreið

hrikalega falið.

Fólgið var á frægri leið.

Fíkniefni talið.


mbl.is Ekki tilviljun að hass fannst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar hræddir eru þeir......

Afar hræddir eru þeir

sem áður voru góðir.

Ekki lána orðið meir

okkar feitu sjóðir.


mbl.is Engin lán á ný hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Beckham ég í burtu fæ

Ef Beckham ég í burtu fæ

bráðvel það mér passar.

Sálarlausir sí og æ

hér sitja papparassar.


mbl.is Vill losna við Beckhamhjónin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðin selur Ásdís Rán

Orðin selur Ásdís Rán.

Ei mér varð um selinn.

Engan selskap utan Brján

á hún stelpudelinn.


mbl.is Ásdís Rán selur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurbætt formúluvísa

Kubica í keppnisraun

kætti geðið pólska.

Ýfði stélið ekki baun.

Engin var þar fólska.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband