Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Álfheiður í eldinn fór

Vinstri grænir völdin stór
vildu Grímsa tryggja.
Álfheiður í eldinn fór
Ömmi hann má liggja.
mbl.is Ekki sanngirni að við borgum, en...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamalt skyr þeir gefa nú

Gamalt skyr þeir gefa nú
grænt og soldið blandað.
Þeim sem áttu orkubú
og útrás hafa landað.
mbl.is Grænu skyri slett í HÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hítina þær henda fé

Í hítina þær henda fé
og hófið ekki finna.
Þó tónlistin í tjóni sé
og töpuð mikil vinna.
mbl.is Tekist á um Tónlistarhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppmaður er Tryggvi Þór

Toppmaður er Tryggvi Þór
töldu menn um daginn.
Norðurí land hann feitur fór
og fékk að prófa slaginn.
mbl.is Skora á Tryggva Þór í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er sopið kálið

Brestur flótti í bankalið
bagalegt er málið.
Útrás veitir engin grið.
Ekki er sopið kálið.
mbl.is Fjöldaflótti frá Kaupþingi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

L er fyrir landhelgi

L er fyrir landhelgi.
"Lokað fyrir öðrum."
Þörf er fyrir þjóðhelgi
og þögn frá EB-nöðrum.
mbl.is L-listinn boðar framboð til alþingiskosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á letigarðinn leita ég

Á letigarðinn leita ég
frá lymskubrögðum símans.
Þar er vistin þægileg.
Þar er Magga Frímanns.
mbl.is Óminnishegri við Litla-Hraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lætur hunda þefa

Löggan stundum læðist hljótt
lítið bundin sefa.
Löngum skundar létt um nótt.
Lætur hunda þefa.


mbl.is Sex handtekin vegna fíkniefnamáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll og Eggertsson

Árni Páll og Eggertsson
af sér sýna snilli.
Laga málin lon og don
og leggja sig á milli.

mbl.is Dagur í varaformanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt er sér til gamans gert

Margt er sér til gamans gert.
Gleðin burt mun fjúka.
Holdið stinnt og holdið bert
helst þeir vilja strjúka.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband