Laus frá viti löggan

Laus frá viti löggan

lyppast út í heim.

Gemsan munda glöggan

glæponar að þeim.


mbl.is Handtaka á Patró á You Tube
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínar fá þau tennur

Fínar fá þau tennur

flottastar í heim.

Gera með þeim glennur

og góla hátt með þeim.


mbl.is Öfunduð af tönnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glitnis gengið hrapar

Glitnis gengið hrapar.

Gaman er að því.

Af aurum verða apar

ætíð víst og sí.


mbl.is Peningarnir komnir til Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítur bara bráðvel út

Lítur bara bráðvel út

bakar engan vanda.

Ekki mikinn sýnir sút

og sigrar þennan fjanda.


mbl.is Britney sögð líta vel út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kubica í keppnisraun

Kubica í keppnisraun

keyrði eins og maður.

Ekki gaf hann eftir baun

en áfram þeyttist glaður.


mbl.is Kubica vinnur jómfrúarsigur og fyrsta sigur BMW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var nú ekki nógu gott

Makedónar malaðir

mikið voru núna.

Voru strákar vankaðir

og vantar eina kúna.


mbl.is Guðmundur Guðmundsson: Menn voru ekki tilbúnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, ég er að meina Sneott

Skipta vill á skutlu oft

skákarinn að vonum.

Allur fer hann uppí loft,

eða sumt af honum.


mbl.is Winehouse notar bleyjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndasögur ókeypis

Myndasögum má þar sinna.

Mjög finnst öllum bót að því.

Aðra slíka ei nam finna.

Alla les með kurt og pí.


mbl.is Jólakötturinn í símaskránni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undir Ingólfsfjalli

Undir Ingólfsfjalli

afar góður lúr.

Entist einum kalli

í utanvegatúr.


mbl.is Dottaði undir Ingólfsfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skagamenn skunduðu á fundinn

Skagamenn skunduðu á fundinn

og skömmuðu Magnúsinn Þór.

Þónokkuð léttist þar lundin

og ljómuðu allir í kór.


mbl.is Góður andi á upplýsingafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig stendur á því að knattspyrnudómarar hafa jafnan minna vit á knattspyrnu en aðrir?

Gaui Þórðar galar hátt,

gneistar af þeim manni.

Óli Ragnars endar þrátt

sem óvinurinn sanni.


mbl.is Ummæli Guðjóns til umfjöllunar hjá aganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar áfram fóru

Íslendingar áfram fóru

eftir soldið fum og baks.

Í vitleysuna voða stóru

verður núna haldið strax.


mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein var sprengjan ósköp góð

Ein var sprengjan ósköp góð

enda djúpt í jörðu.

Gæslu-sveitin alveg óð

óðar beitti hörðu.


mbl.is Sprengja í Fossvogi gerð óvirk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ekki linka við hvað sem er? Það segir Friðrik Þór

Vísur eru bara bull

og brosleg tímaskekkja.

Oftast líka andlaust sull

eins og margir þekkja.


mbl.is Man. Utd Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er alltaf að prófa sig áfram

Í rúminu er betri en Brad.

Beysin er hans vinna.

Alla við hún nuddar nadd,

sem nenna því að sinna.


mbl.is Betri í rúminu en Brad Pitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólarferðum sýnist mér

Sólarferðum sýnist mér

sífellt vera að fækka.

En gríðarlega gaman er

að gengið var að hækka


mbl.is Sólarferðum aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ansvíti var erfitt hér

Ansvíti var erfitt hér.

Ekki var mér rótt.

Hefði getað hjálpað mér,

hlaupastelpan Nótt.


mbl.is Dustin: Við hefðum átt að hlusta á Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlýtur bara að hafa orðið einhver hasar útaf þessu

Varnarliði vondu hjá,

veltist skip að ströndum.

Stæltar löggur stökkva þá

á Stebba og flytja í böndum.


mbl.is Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkuveitumenn eru að bila í trúnni á framtíð gufuaflsins

Bitruvirkjun blessuð er

burtu farin núna.

Það nauðgar enginn sjálfum sér

en sumir missa trúna.


mbl.is Bitruvirkjun út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukum bara útlánin

Aukum bara útlánin.

Aura látum flæða.

Ötul stjórnar afmánin

alla reynir hræða.


mbl.is Útlán of lítil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband