Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Nú er hún Snorrabúð stekkur

Báknið mikla bankamenn

byggðu árum saman.

Þáðu launin þrenn og tvenn,

þótti býsna gaman.


mbl.is Bankastarfsmenn uggandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hefur varla haft tíma til að skoða þetta almennilega!

Klámið skoða karlarnir

og konur stundum líka.

Eflaust vilja einhverjir

ekki þessu flíka.


mbl.is Horfði 780 þúsund sinnum á klám í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og alltaf er verið að segja. Þeir eru stórhættulegir þessir útlendingar

Útlendingar eru tveir

að ergja löggu fína.

Úr stöðumælum stálu þeir

og stungu í vasa sína.


mbl.is Stálu úr stöðumælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félögin þau flækjast um

Félögin þau flækjast um

og fara úr Kauphöllinni.

Kannski verður köllunum

kátt við það í sinni.


mbl.is Hluthafafundur í FL Group haldinn 9. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnsveitu Flateyjar berst góður liðsauki

Tankinn góða Baldur bar,

sem bráðum átti að fleygja.

Nú ræða ekki um rigningar

roggnir peyjar eyja.


mbl.is Tímamót fyrir Flateyinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það enda margir í þessum steini

Helgi steinninn hefur víst

huga Bjarna fangað.

Eftir geimvolk alltaf fýst

og ætlar núna þangað.


mbl.is Bjarni sest í helgan stein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það veitir ekki af að funda sem allra mest

Anna Stefáns ekki rög

alloft sést á fundum.

Orðin hennar eru lög,

eða voru stundum.


mbl.is Anna: Dagurinn ekki búinn enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, þeir eru farnir að herja í Kópavoginum líka

Veggjatítlu vondur her

víða um nætur skríður.

Í hugum flestra ætíð er

úðabrúsalýður.


mbl.is Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja bless við barlóminn og halda uppá peysufatadaginn eins og vanalega

Með pípuhatta og peysuföt

þau prika niðrí bæ.

Æskan dansar ekki löt.

Elskar húllumhæ.

 

(Æ, þetta er víst ofstuðlun þarna í lokin)


mbl.is Peysuföt og pípuhattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, ég sé ekki betur en þetta sé hringhenda

Ei fá klink þó ybbi gogg

og allir flinkir hljóði.

Vel er linkað vísnablogg

veldur slink á ljóði.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband