Orðsending

 

Úps, ég sé að það er talsvert af athugasemdum hér, sem ég vissi ekki af. Takk fyrir það öllsömul. Flestar eru þær mjög jákvæðar.

Sennilega lít ég eitthvað niður á þetta vísnahnoð. Sumar vísurnar eru kannski sæmilegar, en margar ósköp lélegar. Eiginlega er ekki hægt að svara vísum efnislega, því stundum taka rímið og stuðlarnir völdin. Ég er samt ekki að neita ábyrgð á þessu, en sumt mundi ég vilja segja öðruvísi.

Á aðalblogginu mínu (saemi7.blog.is) skoða ég alltaf athugasemdir strax. Svara þeim kannski ekki, en veit af þeim. Gestabókin mín þar týndist um daginn og ég skoða hana líka sjaldan. Stundum líða dagar án þess að ég skoði póstinn minn. Ég er bara svona, en er alltaf að reyna að bæta mig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband