Óbyggðirnar kalla á fulla kalla

Einn er upp til fjalla

útúrfullur senn.

Því óbyggðirnar kalla

á alla drykkjumenn.


mbl.is Drukknir ökumenn skemmdu hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er hún Snorrabúð stekkur

Báknið mikla bankamenn

byggðu árum saman.

Þáðu launin þrenn og tvenn,

þótti býsna gaman.


mbl.is Bankastarfsmenn uggandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hefur varla haft tíma til að skoða þetta almennilega!

Klámið skoða karlarnir

og konur stundum líka.

Eflaust vilja einhverjir

ekki þessu flíka.


mbl.is Horfði 780 þúsund sinnum á klám í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og alltaf er verið að segja. Þeir eru stórhættulegir þessir útlendingar

Útlendingar eru tveir

að ergja löggu fína.

Úr stöðumælum stálu þeir

og stungu í vasa sína.


mbl.is Stálu úr stöðumælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félögin þau flækjast um

Félögin þau flækjast um

og fara úr Kauphöllinni.

Kannski verður köllunum

kátt við það í sinni.


mbl.is Hluthafafundur í FL Group haldinn 9. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnsveitu Flateyjar berst góður liðsauki

Tankinn góða Baldur bar,

sem bráðum átti að fleygja.

Nú ræða ekki um rigningar

roggnir peyjar eyja.


mbl.is Tímamót fyrir Flateyinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það enda margir í þessum steini

Helgi steinninn hefur víst

huga Bjarna fangað.

Eftir geimvolk alltaf fýst

og ætlar núna þangað.


mbl.is Bjarni sest í helgan stein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það veitir ekki af að funda sem allra mest

Anna Stefáns ekki rög

alloft sést á fundum.

Orðin hennar eru lög,

eða voru stundum.


mbl.is Anna: Dagurinn ekki búinn enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, þeir eru farnir að herja í Kópavoginum líka

Veggjatítlu vondur her

víða um nætur skríður.

Í hugum flestra ætíð er

úðabrúsalýður.


mbl.is Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja bless við barlóminn og halda uppá peysufatadaginn eins og vanalega

Með pípuhatta og peysuföt

þau prika niðrí bæ.

Æskan dansar ekki löt.

Elskar húllumhæ.

 

(Æ, þetta er víst ofstuðlun þarna í lokin)


mbl.is Peysuföt og pípuhattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, ég sé ekki betur en þetta sé hringhenda

Ei fá klink þó ybbi gogg

og allir flinkir hljóði.

Vel er linkað vísnablogg

veldur slink á ljóði.


Orðsending frá símanum

Nú auglýsum sem aldrei fyrr.

Allir þurfa síma.

Um tækni ætíð stendur styrr

og stundum tapast glíma.


mbl.is Bein útsending frá Hnjúknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nett borgaraleg óhlýðni

Með sínum nettu neitunum

nældi sér í sprayið.

Skemmti mikið miðlunum

og meiddi löggugreyið.


mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða Sturlu? Nú, bara einhverja Sturlu. Böðvarsson, Jónsson, Snorrason, hvað sem er

Nú vind ég að því bráðan bug

brag einn góðan semja.

Og mér dettur eitt í hug.

Ég ætla Sturlu að lemja.


mbl.is Íhuga að kæra lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko, þetta gátu þeir.

Gasalega gaman var

að geta umferð stöðvað.

Gaslausir þeir göturnar

gátu alveg hreinsað.


mbl.is Rýmingu lokið á Miklubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins axlar einhver ábyrgð, eða hvað?

Lára ábyrgð axlar

eins og Marshallinn.

Guma gamlir jaxlar

og gleðjast enn um sinn.


mbl.is Hættir sem fréttamaður á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi hún vera jafnloðin annarsstaðar líka?

Hár í handarkrikum

hefur þetta kván.

Karlar koll- með vikum

kíkja vilja down.


mbl.is Julia Roberts og handarkrikarnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Galvaskur hann gaf út bréf

Galvaskur hann gaf út bréf

sem gerði Björninn hissa.

"Álit á þér ekkert hef.

Þig allir vilja missa."

 


mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggan talaði við Sturlu með tveimur hrútshornum

Ef þú meira ybbar gogg

og ýfir kransinn þyrni.

Látum við þig lesa blogg

og læra að heilsa Birni.


mbl.is Mótmælin fóru úr böndunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekki má hann aka hratt,"

"Ekki má hann aka hratt,

eg á þennan bílinn."

"Er það reyndar alveg satt,

ég ætti að kveðja skrílinn."


mbl.is Tók bílinn af syninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband