Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Orðsending

 

Úps, ég sé að það er talsvert af athugasemdum hér, sem ég vissi ekki af. Takk fyrir það öllsömul. Flestar eru þær mjög jákvæðar.

Sennilega lít ég eitthvað niður á þetta vísnahnoð. Sumar vísurnar eru kannski sæmilegar, en margar ósköp lélegar. Eiginlega er ekki hægt að svara vísum efnislega, því stundum taka rímið og stuðlarnir völdin. Ég er samt ekki að neita ábyrgð á þessu, en sumt mundi ég vilja segja öðruvísi.

Á aðalblogginu mínu (saemi7.blog.is) skoða ég alltaf athugasemdir strax. Svara þeim kannski ekki, en veit af þeim. Gestabókin mín þar týndist um daginn og ég skoða hana líka sjaldan. Stundum líða dagar án þess að ég skoði póstinn minn. Ég er bara svona, en er alltaf að reyna að bæta mig.


Marar hús í hálfu kafi

Marar hús í hálfu kafi.

Hagar það sér eins og kista.

Á því leikur enginn vafi

ein er byrjuð hátíð lista.


mbl.is Húsi sökkt í Tjörnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú frjálslyndir fara á skrið

Nú frjálslyndir fara á skrið.

Fórnar sér Magnúsar lið.

Endemis óþjóðalýður

óðar í burtu þá skríður.


mbl.is Sviptingar á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út í flugvél æddu sein

Út í flugvél æddu sein,

ekkert mátti bila.

En tagaloggið talar ein

og týndur komst til skila.


mbl.is Gleymdu barninu á flugvellinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungir tjalda ekki fá

Ungir tjalda ekki fá

óðri valda neyslu.

Ölið kalda eiga þá

og aðra halda veislu.


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flauminn stöðvar Flytjandi

 

Flauminn stöðvar Flytjandi

fer hans bíll á hlið.

Byltist þar um beljandi

brjálað vatnaflóðið.

 

Já, ég veit að rímið er ekkert sérstakt í þessu, en það eru bara svo fáir sem nenna að kíkja á þetta, ef ég geri ekki nýjar vísur.


mbl.is Ofsaflóð rauf hringveginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, ég man aldrei hvort það er Farmall eða Ferguson

Glaðbeittur er Giggsarinn.

Gleði mikil núna.

Feikikátur Farmallinn,

fékk við þetta trúna.


mbl.is Manchester United er enskur meistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindar blása í vestrinu

Vindar blása í vestrinu.

Vaskir burtu farnir.

Í Bush-landinu bláköldu

býsna litlar varnir.


mbl.is Fárviðri í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáum hvað í Britney býr

Sjáum hvað í Britney býr.

Brosleg gerast stríðin.

Whitney lögin voða rýr.

Vonlaus músik hríðin.


mbl.is Berst við Whitney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki hægt að pissa hvar sem er

Athygli hann óðar hlaut,

allir mikið hissa.

Inn á staðinn þegar þaut

og þurfti bara að pissa.


mbl.is „Þurfti bara að pissa"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband